Spam og ekki spam

Óumbeðinn ruslpóstur Óumbeðinn, rafrænn ruslpóstur (e. spam) er mjög alvarlegt vandamál í heiminum. Gríðarlegt magn af ruslpósti veldur ekki aðeins ómældum kostnaði heldur hindrar hann og allt af því eyðileggur möguleika góðra og gildra fyrirtækja við að koma upplýsingum til notenda með tölvupósti. Ruslpóstinum á Netinu má líkja við ruslpóstinn sem berst inn um bréfalúguna (fagheitið er markpóstur), nema hvað hann er ekki nándar nærri eins slæmur fyrir umhverfið en veldur þó viðskiptalegum skaða. Góðir og slæmir undir sama hatti Fyrirtæki sem veita almenningi og fyrirtækjum alvöruþjónustu á Netinu, og hafa hingað til haft samband við sína notendur með e-mail, eru nú æ oftar sett á bekk með óprúttnum aðilum sem misnota fjöldasendingar með tölvupósti. Netþjónusta af ýmsu tagi er oft því marki brennd, að stór hluti notendanna greiðir lítið sem ekkert fyrir hluta af þjónustunni. Til þess að geta sett sig í samband við þennan hluta notenda þurfa fyrirtækin að grípa í eigin netfangaskrár, sem oftar en ekki kunna að innihalda netföng sem ekki eru lengur gild, eða að eigendurnir vita ekki til þess að þeir njóti þjónustunnar - þótt sú sé raunin. Þannig þjónustuaðilum er vandi á höndum ef þeir eru sakaðir um að stunda spam. Í raun ættu allir almennir notendur netfyrirtækja að sýna umburðarlindi þegar magnpóstur berst frá aðilum, sem vitað er að veita almenningi fría þjónustu á Internetinu. Á hinn bóginn verður gera ríka kröfu til fyrirtækjanna að þau uppfæri netfangaskrár sínar reglulega og taki með skýrum hætti fram í hvaða tilgangi skrárnar eru haldnar. Slæmt er ef markvissar fjöldasendingar frá fyrirtækjum sem veita góða og gilda þjónustu eru settar undir sama hatt og alþjóðlegt spam. Innlendu netfyrirtækin sem nýta markvisst netfangaskrár sínar til markaðssóknar verða að eiga möguleika á að auka tekjurnar með þessum hætti, eigi þau áfram að geta veitt almenningi fría þjónustu. Modernus

Skrifað 29. Jan 2004 18:27